19.8.2007 | 15:16
RVK.
Þetta var yndisleg helgi. Allt þetta fallega mannlíf í borginni minni. Borginni sem ég hef verið (og er reyndar smá) ósáttur við og vill ekki hafa sem mína endastöð. Og að fara á tónleika með gamalli vinkonu, sem ég hef ekki hitt í rúman áratug. Og það var eins og við hefðum kvaðst í fyrradag, að ég hefði bara skoppið í bæinn til að borga stöðumælasekt og misst af 2-3 strætóum á leiðinni til baka. Sitja undir teppi og hlusta á góða listamenn, labba hönd í hönd í gegnum laugardalinn, tala, hlæja og sjá alla þessa fallegu sköpun. Heim að horfa á mjög góða bíómynd í náttfötum, ullarsokkum með nammi, falleg minning. Og gærdagurinn með sinni glæsilegu flugeldasýningu í lokinn, ég er sátt sál.
Athugasemdir
kæri viðar !
þetta er falleg færsla ! það er gott að skapa góðar minningar bæði einn og með öðrum !
hafðu fallegan mánudag !
AlheimsLjós til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.8.2007 kl. 05:54
Yndislegar minningar sem hlýja um hjartaræturnar.
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 20.8.2007 kl. 13:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.