leita langt yf........

naturehreystimenni  Ætli að fallegustu lönd í heimi, fyrir minn smekk, séu ekki bara til beggja handa við mína fallegu eyju.  Á seinustu öld sat ég í raggaeskapi, á bekk einhverstaðar í Köben, í mikilli veðurblíðu.  Hlammar þá grænlendingur sér við hliðina á mér og segir: má ég ekki sitja við hliðina á þér, þeir þora ekki í þig.  Ég svaraði með löngu haa, benti hann þá á hóp manna sem voru með dekkri hörundslit en hann,  jújú, ekki var það mál fyrir mig.  En svo kom tími að ég vildi að hann færi,  spurði hann hvort hann gæti ekki farið og náð í 2öl, og lét hann fá aur fyrir nokkrum svo hann kæmi ekki aftur.  Eftir ekki langan tíma skröltir þessi hjólbeinótti, horaði, slitni öðlingur, með ekki margar tennur eftir, til baka með 2öl, sest, opnar lófa og segir: VIÐ eigum afgang, á ég ekki bara að kaupa meira á eftir.

 Þegar þú ert kominn á þann stað að þú sért alveg búinn og kemst ekki lengra, þá ertu hálfnaður á þann stað sem þú ætlaðir þér.  Grænlenskur málsháttur, flottur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband