Færsluflokkur: Bloggar
23.7.2010 | 17:59
Njóta augnabliksins og taka sjálfan sig ekki of alvarlega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.7.2010 | 18:38
Hlandhaus happy, me happy
Félagi "heima" frá Englandi kom með þá speki í vetur, kella happy-me happy, og ég prófaði og það svínvirkaði, þar að segja á mig, þegar ég lagði á mig að gera hana glaða, þá voru glaðir dagar hjá mér, einföld og góð uppskrift. Hlandhaus glaður, ég þreyttur með góða líðan, virkar á allt líf.
Bloggar | Breytt 5.8.2010 kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2010 | 00:00
Flottur dagur
Bloggar | Breytt 31.7.2010 kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.6.2010 | 14:31
Afmælis ViddiVið-undan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.5.2010 | 04:50
Lordinnersnilli
Heyrði sögu hjá félaga sem vann á Philipseyum, að þar eru hvitskinnar kallaðir joe. Vinur hans var í friðargæslu, og innfæddir hafi verið að drepa hvorn annan með sveðjum sem notaðar eru á sykureyr. Gekk til hans maður sem hafði verið hökkvinn og hékk hendin bara á sin, hann leit á gæsluliðan, sagði hey joe og datt svo dauður niður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2010 | 15:01
Bíó Myndir.
Datt inni mynd með Angelina Jolie Voight, einhver Lára ofurkona, sá að hún var að berjast við 007 nýja, í Ankor, og maður lifnar allur upp, hóhó, ég var þarna, akkúrat undir þessu tré. Gaman finnst mér að geta samsvarað stað og mynd, hvort sem það sé Jökulsárlóni ,Halong Bay, (007) eða annars staðar. horfði ekki á myndina, ætla að kaupa hana, hér leigir maður ekki, myndin kostar um 20 000, stór tala, en á móti eru 10 dolla um 200 000. held að 101Reykjavík hafi ennþá verið í bíó heima, þegar ég sá hana til sölu hér Myndirnar hér tók leiðsögukona sem ég fékk í einn dag, þetta var flottasti konungur þeirra, byggði mikið og stríðsmaður góður, rak víetnamana öfuga heim, myndir á steini þar sem hann er að fóðra krókódíla, sem voru í síkinu kringum hofið, á þeim.
En það voru stríðsmenn úr vestri sem sigruðu þá, sátu um borgina í sjö mánuði, og svo týndist öll þessi list í 500ár.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2010 | 08:34
Malli
Hann fór tvo túra á bát sem ég var á en ég hafði hitt hann oft áður, Malli var drykkjubolti og lygari af guðsnáð, og ég er ekki frá því að Malli hafi oftar en ekki trúað því sem hann laug. Hann laug peninga útúr flestu fólki sem hann kom nálægt.
Einu sinni þegar ég var ungur og sprækur og var að drekka morgunkaffiafréttaran úti í bæ, og talið barst að hvað ég gerði. Lifnaði þá yfir frúnni og spurði mig um skipstjórann á skipinu, hann hafi fengið slatta af aur hjá henni til að kaupa steríógræur og fleira og ætlaði að koma með eftir næsta túr, en síðan eru margir mánuðir og hún hafði ekkert heyrt frá honum, ég spurði um nafn, hann heitir Malli . ég held að það hafi verið hans uppáhalds lygastarf, að vera skipstjóri eða stýrimaður á fragtskipi.
Ekki veit ég hvernig Malli fékk síman hjá móður minni, en hann hringdi oftar en einu sinni til að fá pening til að borga inná hestannámskeið fyrir barnabörnin hennar, en hann hætti því, því Malli var engin rumur og vissi hvenær átti að hætta til að halda heilsu.
Jú hitt meginhlutverk Malla var að hann var gróser í hestamennsku og tamningamaður mikill, og var talandi alfræðibók á þann heim, minnir að Malli hafi platað einhverja hestamenn um aur, hestar og heilaskurðlækningar var þemað hjá honum þá. En samt skrítið hvað þetta gekk hjá honum, því Malli var í útliti eins ljótur Breti og var með brenndar tennur í munni, en þegar hann var á sínum drykkjutúrum var hann alltaf í dýrustu og flottustu gerð af jakkafötum. Já hann Malli var einstakt fyrirbæri, því "Mallarnir" sem eru núna í fréttatímum í sínum flottu jakkafötum, eru ófullir og ógeðslegir á alla kanta.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2010 | 15:03
35ár
Núna spengja þeir tívolibommbur í miklu magni, það notrar allt, aldrei sér eins margar og stórar. Ég hef heyrt margar útfærslur frá kana um hvernig stríðið fór eða endaði. Þeir geta ekki sagt að þeir hafi unnið stríðið, svo hinn helmingurinn á peningum er,,, annars finnst mér orðalag kerlu minnar best, dagurinn sem seinasti CIA gaurinn drullaði sér í burt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)