Færsluflokkur: Bloggar
26.2.2011 | 16:02
Umferdarreglur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2011 | 16:46
Kaldur mánuður
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2011 | 02:12
Nýtt albúm, 2011
Á gamalárs var ég í mat hjá frönskum vin, við ákváðum að hefja árið á ferð, og þegar fimm tímar voru liðnir af nýja árinu vorum við komnir á hjólin og lagðir af stað í skíta kulda og sudda. 'eg held að fólk sé engu nær nær þó ég telji upp nöfn svo við sleppum því. Fórum að landamærum Laos og gistum í bammbú kofa í litlu þorpi með fjallasýn í allar átti, svona dalir eru í kennslubókum frakka um hvernig á ekki að heyja stríð, eða í það minnsta að ofmeta ekki sjálfan sig. Fegurðin og kyrrðin þarna þarna fyrir norðan og norðvestan er stórkostleg, póstkort í allar áttir. Jú þetta er vietnam, en þar sem ég var eru minnihlutahópar, margir með sýna eigin tungu, thai fólk sem kom þarna fyrir einhverjum hundruðum ára, og þeir aðskilja sig með lit, ein ættin er með fagur fjólubláan lit fyrir sinn bálk. Yndislegt fólk sem er ekki komið í 2007 gír eins og stærstur hluti þessa lands. Og að hjóla þarna í fjöllunum, er þar sem ég hef eiginlega komist næst í því að skilja orðið frelsi.
Bloggar | Breytt 20.1.2011 kl. 03:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.1.2011 | 13:50
Fasteignaskattur
Bloggar | Breytt 19.1.2011 kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2010 | 02:19
Gleðileg Jól og megi hækkandi sól færa okkur öllum gæfu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.12.2010 | 14:21
?
Sá fyrsta Rolsinn á götu í dag, og gula mín sá sinn fyrsta ladyboy, 2, þeir skelltu sér í eróbikk með Namkellum og margar misstu takt, en þeir fara alla leið. Skil því ekki allveg menn sem eru dömulegir og með hneigð til manna, eru þeir að höfða til manna sem eru hneigðir til manna, með því að vera kvenlegir??????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2010 | 07:41
Hljóð og strik
Bubbi skrifað grein um daginn sem ég held að nokkuð margir geti tengt við, ég er ekki alveg sáttur við þessi "blindu" orð, eitthvað svo óyfirstíganlegur dómur í þeim orðum og vonandi koma önnur betri á minni fallegu tungu um þennan "galla" ef hægt er að kalla það svo, og því hafa sumir breytt orðinu yfir í gjöf. Heilinn minn er núna í þeim hrærigraut að blanda saman mismunandi gerðum af hljóðum, (tungumál) sem getur verið pirrandi því þegar það er í gangi minnkar orðaforði minn í hugsun niður í að mér finnst í ekki neitt, þá er styttra á milli tilfinninga, því fyrir mig að hugsa á ylhýra er bara partý, svo mörg, falleg orð að mínum smekk sem ég get notað þar. Njörður P benti mér einhvertíma á þetta partý, ég var í partýinu, en vissi ekki hvað það var gott, tónlist kallaði hann hljóðinn, og hafi hann þökk fyrir.
Margir af mínum félögum og vinum hafa ekki sjónminni á þessi tákn(ritmál) sem notuð eru til að framkalla mynd og/eða hljóð. Og eru því feimnir að setja hugsanir sínar í tánknform því þeir eru smeykir við að aðrir sjái að þeir hafa þennan gjafargalla. Sem er bara sorglegt, því þessi gjaflli tengist sjaldnast greind, og er ég því glaður þegar ég sé vitlaust skrifuð tákn á netinu frá þeim, því þá held ég að þeir séu að minnka að hugsa hvað aðrir séu að hugsa, og það er málið, minnka helst niður í frostmark að hugsa hvað aðrir eru að hugsa um þig, svo lengi að maður sé ennþá að gera góða hluti.
Margar samræður mínar hér byrja á "fyrirgefðu hvað enskan mín er slæm" og fyrr svaraði ég ekkert mál hún er fín, en hvort þetta sorry sé leit að hrósi eða afsökun, er mér orðið sama, láta þá hætta þessu, og svara á móti, "ó ég vissi ekki að þú værir ensk/ur" sem endar svo á "því ertu sorry að tala ekki önnur hljóð fullkomlega, himinlangt í að ég geti það og ég er ekki baun sorry"
Svo benti vinur minn mér á, vinur sem ég hef aldrei hitt eða séð, en ef ég mundi hitta hann mundi ég krumpa hann í klessu og kyssa á ennið, ég set ekki veru af sömu tegund og ég á stall, eru allar jafn (ó)merkilegar ég, og í dag finnst mér það smá fáránlegt, en mér þykir vænt um Edgard Tolle. Hann benti mér á að prófa að hugsa án orða, njóta þess sem á skinfærin skella án orða, og er ég á fullu í dag að reyna svo. Hlandhaus minn var góður í hjálpa mér að gera slíkt, líkamsmál og hljóð sem strik á fleti eru ekki kominn ennþá.
Og að gera rétt, eða gera það sem aðrir segja sé rétt er alls ekki alltaf rétt, ég er mikið búinn að reyna að læra hljóðin hér samkvæmt "réttu" formúlunni, tákn, hljóð, mynd í huga, tengja svo þessi tákn saman til að fá hugsun og hljóð til að nota, en heilinn minn er ekki alveg að kaupa þessa aðferð af einhverjum orsökum, sem búa má til tákn og hljóð um. Því er ég núna að tengja hluti við hljóð og sleppa þessum táknum í bili. Ef þau koma, þá verður þar bara seinna.
 
Bargðgóður-Ngon-tasty-lecker-velsmagende-savoureux-รส อร่อย-schmackhaft- eitt meðal langt uml nær yfir öll þessi tákn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.11.2010 | 11:45
500Euro
Ég er ekki með eu, eða var það ekki, því meira sem Hoover og hans hyski sprikla, því meira snýst ég, það sem er undir mottunni hjá þeim hlýtur að vera þeim það kært, því er skítalykt af málinu. Datt þetta í hug því draugar hér í bæ eru að fá PallMall, ávexti, vodka, bjór og aura, og það í 500 euro seðlum, ekki 100$ eins og venjan hefur verið. Já ég er búinn að velja eftirlíf hér, heima fær maður kerti og blóm í það mesta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)