Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010
5.6.2010 | 14:31
Afmælis ViddiVið-undan
Takk fyrir kveðjurnar á tuðrusmetti, kemst ekki inn, en sé í meili.Takk
Gott að eiga afmæli, eitt ár í viðbót, ekki sjálfgefið fyrir hauga eins og mig, yndislegt, en er svolítið úti að aka þessa daga, er oft mikið hugsi með stút á munn þegar styttist í flug.

En gula mín tók mig út að snæða í tilefni dags, góðan Vietmat, sem er ágætur, miðað við hvað hversdags fæði er hér vont, hræðilegir sjóðarar. Og eftir mat fór ég að út reykja og ná í hjólið, og á leið heim, spurði ég kerlu hvort það væri toppur á kveldi að fá sér góðan og svalandi ís, hún svaraði engu, sem var ekki nema von, ég gleymdi henni niðri bæ
.


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)