Ankor

 

  Raudvinbelgurinn sem var að arka um skóginn her fyrir 150árum, og "fann" thetta hlytur að hafa sagt va', eða i thad minnsta mörgum sinnum merdeeeeShocking


Phnomí Penhí

Ekkialvegbuinn

      Hann var kominn í heiðursstúku (þó ekki eins flotta og sá elsti, hann fer í brons, segi frá honum seinna). og farinn að safna ryki. Ég tel mig of gamlan og slitinn að ferðast á þennan máta, og líka að einhver ferðakvíðisvírus hefur verið að grassera í mér, eða bara hún elli kerling að minna mig á að minn prímatími er liðinn. 

               Og ég sem hélt að ég væri nú orðinn það sjóaður reynslubolti að ekkert kæmi mér á óvart, en gleymi þá að taka kerfið með í dæmið, úr landi innan 35 stunda, velja sendiráð í grend, og get athugað um miðjan næsta mánuð hvort vísur eru kominn.     Síam og Kína alveg út vegna auraskorts.    Það var Laos eða kambodía sem valið var um að lokum, og valdi ég Phnom Penh eftir að hafa talað við mann í skólanum sem var kominn frá Laos fyrir ekki svo löngu.     Og það var ekki sama fátæka rólega Laos sem ég heimsótti fyrir tæpum 10 árum sem hann lýsti fyrir mér. Jú fátæk og spillt er það enn.

     Fyrirvarinn svolítið stuttur fyrir svona ferð, ekki tími til að lesa sig um og gera plan, en heldur ekki til að leggjast í sjálfsvorkunn, heldur gera þetta að góðri minningu.

 

Rigning i Hamburg2001


Taka þessi fallegu listaverk af þessum h..........

       Í Róm var ég mikið hungraður í að skoða, en var með einhverja pest í lungum og gekk bara á 2. En út á fyrsta degi, en þá snjóaði, ég var húfu og vetlingalaus og bara gaddfreðinn, ekki snjóað á áttunda ár, og daginn eftir hikstuðu þessir 2 sem eftir voru. En út samt og ekkert væl, en það getur verið stutt í pirringinn þegar maður er svona vanstilltur.    Og þegar ég kem að Péturskirkju var löng röð, nýbúið að tæma nokkrar rútur af gulu fólki(agaleg hópdýr) en ekki snjóaði heldur fór að rigna, og ég dauðöfundaði hópdýrin því þau voru öll með regnhlífar.  Svo þegar kom að hliði tók við málmleit (vopna) arg, og ég tuðaði við sjálfan mig “ekki dæma, bara njóta”.  Leigði mér heyrnartæki með leiðsögn, og ætlaði aldrei að ná að stilla þau, en þegar það small, og ég var ekki búinn að labba marga metra, þegar þau kynntu mynd eða styttu til hægri handar, “og hér er Jósep, FÓSTUR FAÐIR jesu”. W00t

Róm,


Enn að

''viljugur'' gereyðingjavopnaleitariSaga segir, að hafi á einhverjum tímapunkti hafir guð verið einmanna og því skapað manninn sér til félagskapar. En maðurinn er skepna með ótrúlega aðlögunarhæfni og greind.  Með tímanum var hann orðinn það klár að hann var farinn að ógna veldi hans.  Sleit þá guð hann í tvennt, svo úr var karl og kona, og eftir það beiti maðurinn stórum hluta af orku sinni í að leita að hinum helmingi sínum.  Kaninn er enn  að, drepa og eyðileggja æsku annara landa, í valdagræðgi í sinni og fíkn í orku(oil).  Væri ekki ráð að slíta þá í sundur, aðskilja svokallað biblíubelti frá hinum, færa vopnabúrið norður, kannski með tíma verður gleði að fara flug.


Ryk

   

Framkvæmdir, passa dauðu eignirnar, hafa yfirsýn og stjórn á öllu, rykið burt, ryk gefur vondar minningar. Gleymi oft að það eru engar hallærisplan eða woodstock minningar í þessum kolli, alltof oft.


Arg

     Mikið getur nágranni minn trekkt upp mitt annars góða geð, þegar hann fær sér í glös. Og hann er nágranni, það komst ekki ískápur á milli svalanna hjá okkur.  Það er ekki ropið eða bullið sem vellur úr honum, heldur tónlystin sem hann setur á fóninn.  Sigurrós er bassakór við hliðina á þessu væli

 

Á degi X*9x2 gaf guð mönnunum iPot, til að hvíta draslið héldi smá geðhei.........Takkguddi


Kompás fastur????????

Grund kZ vZ

 

Og ég sem setti stefnuna að seinustu dagar væru að anda að mér skítalykt af dýrum, nýslegnu grasi eða töðu, gamlan LandRover, bilaðan traktor, að úrbeina tudda úr næstu sveit og pakka  fyrir fólk í borginni.  En sigli hratt inní sund innaf sundi, í næstum gluggalaust hús, i margmilljóna manna borg, uppá fimmtu hæð, með þetta útsýni. Mmmmmmm.

 

Svalir 

 

 


Hækkar endalaust

 ufffÉg setti í denn á skjá eitthvað um hvað varast skildi í umferðinni.  Þegar ég var yngri voru það gamlir karlar í frakka með hatt. á Lödu. Og svo þegar þeir dóu út tóku við konur á upphækkuðum tröllajeppum á leið í vinnu og word class.  Og fjölgun á flottum dýrum bílum hér er svakaleg, að aka um á mörg hundruð hestafla bmw hér, er álíka gáfulegt og 38tommu innanbæjartækin heima. Já uppsveiflan hér er ótrúleg, og ef maður segir, bíddu smá, fær maður, nonono, efnahagur hér örðuvísi en heimurinn, hvort það sé samhljómur með því og ''the IcelandicWay'' veit ég ekki. 


80+

 Ég á gömul bómullarnáttföt, já gömul og slitinn með marga enda út í loftið, haugamatur, en bestu föt til að sofa í hér í rakanum.  Og  í morgun fór ég niður og mallaði grautinn minn sem er mín víet útgáfa af hræringum heima. Sat ég í stofunni í náttfötum, með hvorki skegg eða hár í tagli. Syfjaður að láta skeiðina rata í munn í gegnum mitt síða hár.  Kemur þá gula mín  heim með konu til að pranga inná eitthvað snyrtivörudrasl sem dóttir hennar kaupir í ''kolaporti'' í Frakklandi og sendir hingað, og kerla mín selur nýríkum kerlingum til að fjármagna nám hennar. En þegar þær voru farnar aftur út spyr konan gulu mína '' gerir þú hrígrjónasúpu fyrir hann á hverjum degi?'' (hrígrjónasúpa eru mauksoðinn hrísgrjón sem gefin eru gömlu fólki sem misst hafa allar tennur)Hrisgjonasupa

Tilgangsleyi algjört.

 Þegar ég var í Frakklandi, hjólaði ég í vinnuna í gegnum lítinn bæ, fallegur með stóra brú fyrir lest yfir sér.  'A hæsta punkti bæjarins var minnismerki, fallegt minnismerki um drengina sem þessi bær, eða þorp í þá daga, sendi í dauðan í fyrra stríði. Nöfnin þeirra og hvenær þeir féllu.  Maður sá á listanum hvenær mestu orrusturnar voru, Somme og Verdun, þorpið hefur verið gjörsamlega hreinsað af mönnum sem haldið gátu á vopni, miðað stærð þorpsins og fjölda nafna á merkinu, þá voru bara ókynþroska og mjög svo aldraðir eftir.  Bara sorglegt, og ekkert kom úr nema vondir samningar og annað ömurlegt stríð.

 


Eitt skot.

Lífið er einhleypa, framhlaðin úr plasti, miðaðu vel.

Best

Þetta er bara besta auglýsing sem ég hef séð, tillögur að betri vel þegnar.

http://www.funnyplace.org/stream.php?id=11575


Umhyggja

 DDonakarlar Mikið er gott að vita af öllu þessu fólki þarna úti, sem er að stjórna því hvað er gott og hvað er vont, hvað við gerum eða látum í okkur.  Að vita að löggan fylgist grant með hvort dónakarlar séu að sofa hjá vændiskonum frá SuðurAmeríku, og kæra svo blessað dómskerfið hafi nú eitthvað að gera.  En er ekki búið að segja þeim að andlitsbókin er ekki holl fyrir land og lýð, það vita þeir þó hér, ekkert tuðrusmetti hér takk.

Russlana

Náði í Ruslu í dag, þurfti að teyma hana rúma 5k eftir að stimpillinn bara festist, gruna karlhauginn sem var á henni hafi ekki sett á hana olíu, Rusla er algjör skröltandi drusla, yndisleg.Russlana1


Prinz Valium

Ferðin útá flugvöll spes.  Bíllinn sem ég hafði pantað kom ekki, og fór aðsnapa leigubíl og það var bara ekki sjálfgefið því þetta var um hánótt og bær gleðinnar var farinn að sofa.  Mótorhjólataxi fór í endann útá strönd að ná í bíl.   Svo útá hraðbraut fannst mér karlinn keyra skrítið, 4 akreinar og hann alltaf að skipta, gefa í og slá af, leitaði alltaf til hægri sem mér fannst ekkert skrítið og gerði alltaf sjálfur í þessari bresku homma vinstri umferð.  Það var ekki fyrr en engin vegur var framundan að ég kveikti á perunni og stökk á stýrið til að fara ekki til himna, eða niður.  Karlpungurinn var steinsofandi. Og þrátt fyrir vatnsgusur og sykurorkudykki á bensínstöð, þá þurfti ég hrista hann og klappa alla leiðina því hann bara gat ekki haldi augunum opnum. Má segja að ég hafi verið ósköp feginn þegar þessum túr lauk.

Hanoi

Eg er lengi ad lenda her i Hanoi, a sal og líkama.  Ekki eins að eg hafi ekki gert tetta adur og a fleiri stodum, gamla Hanoi er bara meiri suga og tekur lengri tíma, mikið lengri.

2/3

 Eitthvað flott að gerast hér, við rauðhnakkar vorum bara 2/3 miðað við 95% i fyrra.

Vanity

 Snobb er allstaðar, út um allan heim, litur á plasti eða tegund á faratæki.  Heima í hanoi setja konurnar tómar flöskur af erlendu áfengi út á tröppur að sunnudagsmorgni, með blátt auga og bólgna vör.  Hér er það þyngd af málmi sem hangir á þér, allt gott og blessað fyrir mig.  En það er snobb hérna fyrir austan sem getur verið hættulegt fyrir mig, þetta airconsnobb, orka er ekki ódýr og sá sem getur haft við frostmark á aur, að hoppa úr þessum hita í frost, þó það sé ekki nema í klukkutíma, ég kem hnerrandi út.

Hættulegur zódí

uppmeðhendur Bærinn er stútfullur.  Af rússneskum fegurðardísum, og mjög stórir rútufarmar af gulu fólki sem ég veit ekki hvaðan koma, ganga um bæinn í hópum með einn með flagg í fararbroddi, svona gerlabælisskrúðganga.  Og svo er flugmóðurskip ásamt fylgibátum.   Rabbaði við einn, og spurði hvert þeir væru að fara, hann umlaði eitthvað í bringuna um svarta sjóræningja. Ég ætla ekki í frí til Írans í bráð.bú

"Fastur"

Ég get hugsað mér marga verri staði að festast á en síam, marga.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband